Solana bálkakeðjan 2/4
í litlum viðráðanlegum bitum

Hér í annarri færslu af fjórum ætlum við að fara yfir helstu defi valmöguleika á Solana. Defi eða dreifistýrð fjártækni er andstæðan við miðlæga fjártækni. Miðlæg fjártækni er það sem við þekkjum úr hinum hefðbundna fjármálaheimi, t.d. þegar banki er milliliður sem tekur á móti innlánum og lánar út fjármunina til þriðja aðila og tekur mismuninn á vöxtunum sem sinn hagnað. Með tilkomu snjallsamninga opnaðist heimur dreifstýrðrar fjártækni þar sem aðilar geta átt í öruggum viðskiptum, án milligöngu þriðja aðila með mun lægri þóknunum. Snjallsamningar á bálkakeðjum eru komnir nokkuð langt með að leysa hin ýmsu verkefni hefðbundinna fjármálastofnanna.
Staking

Solana notast við svokallað „proof of stake“ við að sannreyna og staðfesta viðskipti á Solana bálkakeðjunni. Þeir sem eiga SOL rafmyntina geta lagt hana „að veði“ (e. stake) fyrir staðfestara (e. validators) sem nota SOL til að kjósa um staðfestingu viðskipta á bálkakeðjunni. Bálkakeðjan verðlaunar þessa aðila með því að úthluta til þeirra meira SOL með regulegu millibili. Bálkakeðjan greiðir um 6,67% ársvexti að svo stöddu en vextir eru greiddir út á 2-3 daga fresti. Proof of stake hugmyndafræðin byggir á því að þeir sem hafa meiri fjárhagslega hagsmuni af velgengi kerfisins, hafi meiri áhrif við staðfestingu viðskipta. Hugmyndin er sú að þeir séu ólíklegri til að vilja reyna skemma virkni kerfisins enda myndu þeir sjálfir tapa mest á því. Hægt er að stake'a beint í veskinu, t.d. Phantom eða Solflare.
Liquid staking
Staking hefur þann galla í för með sér fyrir fjárfesta að verið er að festa SOL tímabundið. Liquid staking er leið til að halda fjármununum enn fljótandi. Með tilkomu Marinade finance er nú hægt að stake'a og fá tilbaka mSOL tokens og nota þá áfram í Defi, t.d. liquidity pool eða lending pool. Marinade finance passar líka upp á að stake'a SOL hjá staðfestir (e. validator) sem hefur gott orðspor auk þess að stuðla að meiri dreifingu (e. decentralization).
Liquidity pools
Liquidity pools eru snjallsamningar sem innihalda rafmyntir og gera notendum notendum að skipta úr einni yfir aðra. Fjárfestar (e. liquidity providers) geta lagt rafmyntir inn í sjóðina og fá hluta af þeim þóknunum sem notendur borga þegar þeir skipta rafmyntum við sjóðinn. Snjallsamningurinn er alltaf með opið kauptilboð og sölutilboð en verðið stýrist eftir framboð og eftirspurn hverju sinni. Stærstu þjónustuveitendurnir á Solana Orca.so og Raydium.io
Openbook
Openbook er snjallsamningur sem leyfir notendum að leggja fram eigin kaup- og/eða sölutilboð á rafmyntum. Slíkir markaðir hafa ekki verið taldir hagkvæmir á mörgum öðrum bálkakeðjum vegna kostnaðar en lág færslugjöld á Solana gerir þetta að raunverulegum möguleika. Serum var fyrsti markaðurinn á Solana með þessa eiginleika en notkun hans var hætt eftir fall FTX. Þess í stað opnaði Openbook en til að nálgast openbook er hægt að tengja sig við ýmsa front end þjónustuveitendur s.s. pro.prism.ag

Lending pools
Þetta eru snjallsamningar sem innihalda rafmyntir og lána notendum rafmyntir eftir þörfum. Til þess að geta fengið rafmyntir að láni þurfa notendur að leggja fram aðrar rafmyntir sem tryggingu. Snjallsamningurinn fylgist með verði þeirra rafmynta sem lagðar eru fram sem trygging. Ef verð þeirra lækkar og nálgast verðmæti lánsins sem það er ætla að tryggja verður svokallað veðkall þar sem rafmyntirnar eru seldar til að forðast tap hjá snjallsamningnum. Á meðan lánið varir þarf notandinn að borga vexti sem renna til þeirra sem lögðu fram rafmyntirnar til láns. Þessir snjallsamningar sinna grundvallarþjónustu banka, þ.e. innlán og útlán án milliðar og með mun hagstæðari vexti fyrir báða aðila. Solend.fi er stærsti lánamarkaðurinn á Solana.
Futures
Framvirkir samningar opna á möguleika til að eiga viðskipti um framtíðarvirði tiltekinn rafmynta. Þær rafmyntir þurfa ekki að vera á Solana bálkakeðjunni og er því hægt að fjárfesta í samningum sem snúa að virði Bitcoin, Ethereum, BNB o.s.frv. Notendur geta tekið stöðu með (e. long) eða á móti (e. short) tiltekinni rafmynt. Þá er líka hægt að gíra stöðuna sem margfaldar áhættuna en líka mögulegan ávinning. Stærsta kauphöllin á Solana með framvirka samninga er Drift
Látum hér staðar numið í bili. Í þriðju færslu af fjórum verður farið ofan í NFT's á Solana. NFT's hafa tröllriðið rafmyntamarkaði undanfarin ár og er Solana þar ekki undanskilið. Raunar er Solana með næst mestu veltu á NFT's á eftir Ethereum. NFT's snýst ekki bara um jpeg myndir á netinu en nánar um það næst.







