Solana bálkakeðjan 1/4
í litlum viðráðanlegum bitum.

Þetta er fyrsta af fjórum færslum sem snúa að Solana bálkakeðjunni. Hér í fyrstu færslunni ætlum við að fara yfir Solana bálkakeðjuna og hvað sker hana úr frá öðrum bálkakeðjum.
Hraðvirk og ódýr
Solana er talin vera ein hraðvirkasta bálkakeðja heims. Áætluð afkastageta bálkakeðjunnar er um 50.000 færslur á sekúndu sem er sambærileg og afkastageta greiðslukortafyrirtækisins VISA á heimsvísu. Dagleg notkun nær þó ekki slíkum fjölda en algengt er að um 3000-4000 færslur eru afgreiddar á sekúndu. Hægt er að sjá færslur í rauntíma á solana.com. Til samanburðar er afkastageta Etherum um 13-15 færslur á sekúndu og Bitcoin um 3-7 færslur á sekúndu. Solana bálkakeðjan er enn fremur með þeim ódýrustu enda eru færslugjöld á keðjunni um 0,00025$ sem er um 3 íslenskir aurar. Til samanburðar eru dæmigerð færslugjöld á Ethereum frá 11 - 27$ eða frá 1400 - 3400 kr. og Bitcoin um 1$ eða 140 kr.
Proof of History & Proof of stake
Afkastageta Solana grundvallast að miklu leyti á að aðferðin til að sannreyna réttmæti færslna á bálkakeðjunni er öðruvísi en á öðrum bálkakeðjum s.s. eins og Bitcoin sem notast við "Proof of work". Solana byggir á blöndu af "proof of stake" og "proof of history" til að sannreyna réttmæti færslna en þessi aðferð tekur mun minni tíma og þarfnast ekki jafn mikillar orku.
Hraði og afkastageta bálkakeðjunnar gerir forriturum kleift að útbúa þjónustur sem flestar aðrar bálkakeðjur myndu aldrei ráða við.
Solana Pay

Solana Pay er nýtt greiðslukerfi á Solana sem er enn í þróun. Verslanir geta nú tekið á móti greiðslu af Solana bálkakeðjunni með nánast engri uppsetningu. Notendur geta greitt með síma og millifærslan er framkvæmd samstundis með litlum sem engum kostnaði, hvorki fyrir notandann né fyrir verslunina. Solana pay er líka með innbyggt fríðindakerfi sem verslanir geta nýtt sér til að bjóða viðskiptavinum sínum sérstök kjör.
Solana Mobile
Solana hefur gefur út Android síma með innbygðu vélbúnaðarverski. Hlutverk símans er að einfalda til muna alla notkun á rafmyntum í gegnum síma en á sama tíma að viðhalda öllum öryggi sem felst í vélbúnaðarverskjum. Innviðir símans eru í hæsta gæðaflokki og er honum ætlað að keppja við helstu flaggskip Android síma, s.s. frá Samsung. Síminn er líka með sérstakt app store fyrir forrit í símann en bæði Apple og Google hafa verið erfiðir við að samþykkja rafmyntatengd forrit. Þú getur skoðað allt um þennan síma hér.
Orkunotkun.
Solana státar af því að vera ein umhverfisvænasta bálkakeðja heims og hefur keðjan verið hönnuð með það í huga að nota sem minnsta orku fyrir hverja færslu. Orkunotkun er í sumum tilfellum lítið brot af notkun annarra keðja, sérstaklega Bitcoin. Hægt er að fylgjast með orkunotkun bálkakeðjunnar í rauntíma hér.

NFT compression
Solana kynnti á dögunum nýja þjöppunartækni á bálkakeðjunni sem dregur niður kostnað við útgáfu NFT's á bálkakeðjunni með verulegum hætti. Nýja tæknin opnar á að hægt sé að minta fleiri milljónir NFT's á brot af þeim kostnaði sem áður var eða samanborið við aðrar keðjur.

xNFT's
xNFT er NFT í formi forrits sem lifir í veski notandans. Þetta opnar nýjar leiðir fyrir dreifingu forrita. Leikir geta verið gefnir út sem NFT. Listamenn geta búið til þrívíddarupplifun sem ekki er hægt að afrita og keyrir beint af veskinu. Möguleikarnir eru nánast takmarkalausir og mun þetta opna á nýjar víddir. Backpack er fyrsta veskið á Solana til að styðja xNFT's.
Solana er í fremstu röð tækniþróunar og er stefnan sett á að gera rafmyntaheiminn aðgengilegri fyrir hinn almenna borgara. Solana Saga og Solana Pay eru ákveðnir vísar um hvað koma skal í þeim efnum. Látum hér staðar numið í bili en í næstu færslu ætlum við að fara yfir helstu DEFI möguleikum á Solana.
Þangað til næst.



