Mintum
Hér í annarri færslu af fjórum ætlum við að fara yfir helstu defi valmöguleika á Solana. Defi eða dreifistýrð fjártækni er andstæðan við miðlæga fjártækni. Miðlæg fjártækni er það sem við þekkjum úr hinum hefðbundna fjármálaheimi, t.d. þegar banki er milliliður sem tekur á móti innlánum og lánar út fjármunina til þriðja aðila og tekur mismuninn á vöxtunum sem sinn hagnað. Með tilkomu snjallsamninga opnaðist heimur dreifstýrðrar fjártækni þar sem aðilar geta átt í öruggum viðskiptum, án milligöngu þriðja aðila með mun lægri þóknunum. Snjallsamningar á bálkakeðjum eru komnir nokkuð langt með að leysa hin ýmsu verkefni hefðbundinna fjármálastofnanna.
Staking
Solana notast við svokallað „proof of stake“ við að sannreyna og staðfesta viðskipti á Solana bálkakeðjunni. Þeir sem eiga SOL rafmyntina geta lagt hana „að veði“ (e. stake) fyrir staðfestara (e. validators) sem nota SOL til að kjósa um staðfestingu viðskipta á bálkakeðjunni. Bálkakeðjan verðlaunar þessa aðila með því að úthluta til þeirra meira SOL með regulegu millibili. Bálkakeðjan greiðir um 6,67% ársvexti að svo stöddu en vextir eru greiddir út á 2-3 daga fresti. Proof of stake hugmyndafræðin byggir á því að þeir sem hafa meiri fjárhagslega hagsmuni af velgengi kerfisins, hafi meiri áhrif við staðfestingu viðskipta. Hugmyndin er sú að þeir séu ólíklegri til að vilja reyna skemma virkni kerfisins enda myndu þeir sjálfir tapa mest á því. Hægt er að stake'a beint í veskinu, t.d. Phantom eða Solflare.
Liquid staking
Staking hefur þann galla í för með sér fyrir fjárfesta að verið er að festa SOL tímabundið. Liquid staking er leið til að halda fjármununum enn fljótandi. Með tilkomu Marinade finance er nú hægt að stake'a og fá tilbaka mSOL tokens og nota þá áfram í Defi, t.d. liquidity pool eða lending pool. Marinade finance passar líka upp á að stake'a SOL hjá staðfestir (e. validator) sem hefur gott orðspor auk þess að stuðla að meiri dreifingu (e. decentralization).
Liquidity pools
Liquidity pools eru snjallsamningar sem innihalda rafmyntir og gera notendum notendum að skipta úr einni yfir aðra. Fjárfestar (e. liquidity providers) geta lagt rafmyntir inn í sjóðina og fá hluta af þeim þóknunum sem notendur borga þegar þeir skipta rafmyntum við sjóðinn. Snjallsamningurinn er alltaf með opið kauptilboð og sölutilboð en verðið stýrist eftir framboð og eftirspurn hverju sinni. Stærstu þjónustuveitendurnir á Solana Orca.so og Raydium.io
Openbook
Openbook er snjallsamningur sem leyfir notendum að leggja fram eigin kaup- og/eða sölutilboð á rafmyntum. Slíkir markaðir hafa ekki verið taldir hagkvæmir á mörgum öðrum bálkakeðjum vegna kostnaðar en lág færslugjöld á Solana gerir þetta að raunverulegum möguleika. Serum var fyrsti markaðurinn á Solana með þessa eiginleika en notkun hans var hætt eftir fall FTX. Þess í stað opnaði Openbook en til að nálgast openbook er hægt að tengja sig við ýmsa front end þjónustuveitendur s.s. pro.prism.ag
Lending pools
Þetta eru snjallsamningar sem innihalda rafmyntir og lána notendum rafmyntir eftir þörfum. Til þess að geta fengið rafmyntir að láni þurfa notendur að leggja fram aðrar rafmyntir sem tryggingu. Snjallsamningurinn fylgist með verði þeirra rafmynta sem lagðar eru fram sem trygging. Ef verð þeirra lækkar og nálgast verðmæti lánsins sem það er ætla að tryggja verður svokallað veðkall þar sem rafmyntirnar eru seldar til að forðast tap hjá snjallsamningnum. Á meðan lánið varir þarf notandinn að borga vexti sem renna til þeirra sem lögðu fram rafmyntirnar til láns. Þessir snjallsamningar sinna grundvallarþjónustu banka, þ.e. innlán og útlán án milliðar og með mun hagstæðari vexti fyrir báða aðila. Solend.fi er stærsti lánamarkaðurinn á Solana.
Futures
Framvirkir samningar opna á möguleika til að eiga viðskipti um framtíðarvirði tiltekinn rafmynta. Þær rafmyntir þurfa ekki að vera á Solana bálkakeðjunni og er því hægt að fjárfesta í samningum sem snúa að virði Bitcoin, Ethereum, BNB o.s.frv. Notendur geta tekið stöðu með (e. long) eða á móti (e. short) tiltekinni rafmynt. Þá er líka hægt að gíra stöðuna sem margfaldar áhættuna en líka mögulegan ávinning. Stærsta kauphöllin á Solana með framvirka samninga er Drift
Látum hér staðar numið í bili. Í þriðju færslu af fjórum verður farið ofan í NFT's á Solana. NFT's hafa tröllriðið rafmyntamarkaði undanfarin ár og er Solana þar ekki undanskilið. Raunar er Solana með næst mestu veltu á NFT's á eftir Ethereum. NFT's snýst ekki bara um jpeg myndir á netinu en nánar um það næst.
Þetta er fyrsta af fjórum færslum sem snúa að Solana bálkakeðjunni. Hér í fyrstu færslunni ætlum við að fara yfir Solana bálkakeðjuna og hvað sker hana úr frá öðrum bálkakeðjum.
Hraðvirk og ódýr
Solana er talin vera ein hraðvirkasta bálkakeðja heims. Áætluð afkastageta bálkakeðjunnar er um 50.000 færslur á sekúndu sem er sambærileg og afkastageta greiðslukortafyrirtækisins VISA á heimsvísu. Dagleg notkun nær þó ekki slíkum fjölda en algengt er að um 3000-4000 færslur eru afgreiddar á sekúndu. Hægt er að sjá færslur í rauntíma á solana.com. Til samanburðar er afkastageta Etherum um 13-15 færslur á sekúndu og Bitcoin um 3-7 færslur á sekúndu. Solana bálkakeðjan er enn fremur með þeim ódýrustu enda eru færslugjöld á keðjunni um 0,00025$ sem er um 3 íslenskir aurar. Til samanburðar eru dæmigerð færslugjöld á Ethereum frá 11 - 27$ eða frá 1400 - 3400 kr. og Bitcoin um 1$ eða 140 kr.
Proof of History & Proof of stake
Afkastageta Solana grundvallast að miklu leyti á að aðferðin til að sannreyna réttmæti færslna á bálkakeðjunni er öðruvísi en á öðrum bálkakeðjum s.s. eins og Bitcoin sem notast við "Proof of work". Solana byggir á blöndu af "proof of stake" og "proof of history" til að sannreyna réttmæti færslna en þessi aðferð tekur mun minni tíma og þarfnast ekki jafn mikillar orku.
Hraði og afkastageta bálkakeðjunnar gerir forriturum kleift að útbúa þjónustur sem flestar aðrar bálkakeðjur myndu aldrei ráða við.
Solana Pay
Solana Pay er nýtt greiðslukerfi á Solana sem er enn í þróun. Verslanir geta nú tekið á móti greiðslu af Solana bálkakeðjunni með nánast engri uppsetningu. Notendur geta greitt með síma og millifærslan er framkvæmd samstundis með litlum sem engum kostnaði, hvorki fyrir notandann né fyrir verslunina. Solana pay er líka með innbyggt fríðindakerfi sem verslanir geta nýtt sér til að bjóða viðskiptavinum sínum sérstök kjör.
Solana Mobile
Solana hefur gefur út Android síma með innbygðu vélbúnaðarverski. Hlutverk símans er að einfalda til muna alla notkun á rafmyntum í gegnum síma en á sama tíma að viðhalda öllum öryggi sem felst í vélbúnaðarverskjum. Innviðir símans eru í hæsta gæðaflokki og er honum ætlað að keppja við helstu flaggskip Android síma, s.s. frá Samsung. Síminn er líka með sérstakt app store fyrir forrit í símann en bæði Apple og Google hafa verið erfiðir við að samþykkja rafmyntatengd forrit. Þú getur skoðað allt um þennan síma hér.
Orkunotkun.
Solana státar af því að vera ein umhverfisvænasta bálkakeðja heims og hefur keðjan verið hönnuð með það í huga að nota sem minnsta orku fyrir hverja færslu. Orkunotkun er í sumum tilfellum lítið brot af notkun annarra keðja, sérstaklega Bitcoin. Hægt er að fylgjast með orkunotkun bálkakeðjunnar í rauntíma hér.
NFT compression
Solana kynnti á dögunum nýja þjöppunartækni á bálkakeðjunni sem dregur niður kostnað við útgáfu NFT's á bálkakeðjunni með verulegum hætti. Nýja tæknin opnar á að hægt sé að minta fleiri milljónir NFT's á brot af þeim kostnaði sem áður var eða samanborið við aðrar keðjur.
xNFT's
xNFT er NFT í formi forrits sem lifir í veski notandans. Þetta opnar nýjar leiðir fyrir dreifingu forrita. Leikir geta verið gefnir út sem NFT. Listamenn geta búið til þrívíddarupplifun sem ekki er hægt að afrita og keyrir beint af veskinu. Möguleikarnir eru nánast takmarkalausir og mun þetta opna á nýjar víddir. Backpack er fyrsta veskið á Solana til að styðja xNFT's.
Solana er í fremstu röð tækniþróunar og er stefnan sett á að gera rafmyntaheiminn aðgengilegri fyrir hinn almenna borgara. Solana Saga og Solana Pay eru ákveðnir vísar um hvað koma skal í þeim efnum. Látum hér staðar numið í bili en í næstu færslu ætlum við að fara yfir helstu DEFI möguleikum á Solana.
Þangað til næst.
Á undanförnum árum hafa fastgengismyntir (e. stablecoins) verið að ryðja sér til rúms í rafmyntaheiminum. Fastgengismyntir eru í einföldu máli staðgenglar hefðbundinna gjaldmiðla í rafmyntaheiminum. Stærstu fastgengismyntirnar eru USD Tether (USDT) og USD Coin (USDC). Í daglegu tali eru þeir nefndir raf-dollarar. Sá sem á dollara getur skipt yfir í þessa raf-dollara á genginu 1:1 og fært þannig fjármuni sína inn í rafmyntaheiminn. Sá sem á raf-dollara getur með sama skapi skipt tilbaka í dollara á genginu 1:1. Margir aðrir gjaldmiðlar hafa einnig verið færðir yfir í rafmyntaheiminnm, s.s. raf-evra (EUROC, EURT), raf-pund (GBPT) raf-franki (DCHF), raf-yen (GYEN), raf-yuan (TCNH), raf-rúpíur (IDRT), og svo mætti áfram telja. Viðskipti með raf-dollara hafa vaxið gríðarlega á síðustu misserum og er umfang viðskipta nú meira en VISA og Mastercard.
Rafmyntasjóður Íslands hefur nú gefið út íslenskar raf-krónur (ISKT) en það er rafmynt sem fest er við gengi íslensku krónunnar 1:1. Íslenska fastgengismyntin ISKT hefur virkni stafræns gjaldmiðils. Fyrir hvert ISKT í umferð geymir Rafmyntasjóður Íslands 1 krónu í eignasafni. Með þessu móti er tryggt að alltaf sé hægt að skipta tilbaka í krónur. ISKT veitir fyrirtækjum og einstaklingum áreiðanlega og skilvirka lausn til að vinna með stafræna gjaldmiðla.
Hverjir eru notkunarmöguleikar ISKT?
Erlend viðskipti: Fyrirtæki sem framkvæma uppgjör erlendra viðskipta yfir í rafmyntaheiminn geta náð fram verulegum ávinningi með notkun ISKT:
Gjaldeyrisviðskipti: Rafmyntamarkaðir veita notendum möguleika á að leggja fram eigin tilboð í tilboðsbók. Verðmyndun á rafmyntamörkuðum leiðir af sér minni mun á milli kaup- og sölugengis samanborið við gjaldeyriskaup í gegnum íslenska banka.
Viðskipti ekki bundið við opnunartíma: Rafmyntamarkaðir eru opnir allan sólahringinn allan ársins hring. Notendur eru því ekki bundnir við tiltekinn opnunartíma og geta því stundað viðskipti sín hvenær sem er án hindrana.
Viðskipti ekki bundið við landamæri: Eðli rafmyntaviðskipta leiðir af sér að ekki skiptir máli í hvaða landi móttakandinn er staðsettur. Þó að móttkakandinn sé staðsettur hinum megin á hnettinum tekur sendingin jafn langan tíma. Hraði rafmyntasendinga er mismunandi milli bálkakeðja. ISKT rafkrónan er á Solana bálkakeðjunni sem er ein hraðvirkasta bálkakeðja heims þar sem sendingartími er að jafnaði 1-2 sekúndur.
Dæmi:
Íslenskir bankar bjóða að kaupa USD fyrir 144 kr. en selja USD fyrir 145 kr.
Íslenskt útflutningsfyrirtæki móttekur greiðslur frá félagi í Taivan í formi USDC. Greiðslan frá Taívan tekur 2 sekúndur að berast í veski íslenska félagsins. Íslenska félagið býður USDC til sölu fyrir ISKT á genginu 144,5 á rafmyntamörkuðum. Sölutilboðið er tekið af Íslenskt innflutningsfyrirtæki sem notar USDC til að greiða erlendum birgja. Greiðslan tekur 2 sekúndur að berast sem þýðir að erlendi birginn getur sent vörurnar af stað fyrr en ella. Bæði félögin hafa sparað sér bæði tíma og peninga sé þetta borið saman við þjónustu bankanna. Félögin áttu viðskipti á miðgengi og þurftu því hvorugt að greiða álag banka tengt gjaldeyrisviðskiptum. Tíminn sem sparast er oft á tímum enn verðmætari enda taka erlendar millifærslur almennt a.m.k. 1-2 daga í gegnum SWIFT / SEPA kerfi bankanna.
Fjárfestingar í rafmyntum: Með ISKT er auðvelt og hraðvirkt að breyta krónum sínum í rafrænt form í þeim tilgangi að fjárfesta í rafmyntum. ISKT er gefið út á Solana bálkakeðjunni og geta handhafar ISKT skipt í allar rafmyntir sem gefnar eru út á keðjunni. Þannig geta notendur fjárfest í wrappaðar útgáfur af Bitcoin, Ethereum og BNB svo eitthvað sé nefnt. Einnig er hægt að skipta ISKT yfir í USDC á Solana sem er gjaldgengt á öllum stærri rafmyntakauphöllum heims svo sem Binance, Kraken, Coinbase o.fl. en þetta leyfir notendum þannig að nýta sér fjölbreyttari og ódýrari fjárfestingarmöguleika samanborið við íslenska rafmyntamarkaði.
Ávöxtun ISKT: Með því að taka þátt í lausafjárpotta eins og Orca.so geta ISKT-eigendur fengið þóknun af færslugjöldum sem aðrir notendur greiða við skipti milli rafmynta. Fjárfestar (e. liquidity providers) geta lagt rafmyntir inn í sjóðinn og fá hluta af þeim þóknunum sem notendur borga inn í sjóðinn. Þegar fjárfestar leggja inn í sjóðinn verða þeir að leggja inn báðar rafmyntir í jöfnum hlutföllum. Hægt er að kynna sér betur lausafjárpotta hér.
Öryggi og gegnsæi
Öryggi og trygging eru grundvallaratriði þegar um er að ræða notkun stafrænna gjaldmiðla. Á vefsvæði Mintum.is, þar sem notendur skipta krónum yfir í ISKT rafkrónur, er notaast við rafræn skilríki Auðkennis fyrir innskráningu auk þess sem hægt er að bæta við fjórar mismunandi fjölþátta auðkennisleiðir, allt frá SMS-skilaboðum til öryggislykla.
Rafmyntasjóður Íslands er skráður þjónustuveitandi sýndarfjár og lútir eftirliti Seðlabanka Íslands samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Löggiltir endurskoðendur ganga úr skugga um að innistæða bankareikninga svari undir öllum rafkrónum á markaði hverju sinni en staðfestingar þess efnis eru birtar reglulega á vefsvæði félagsins.