Skip to main content

Command Palette

Search for a command to run...

Hvað er ISKT rafkróna?

Updated
4 min read
Hvað er ISKT rafkróna?

Á undanförnum árum hafa fastgengismyntir (e. stablecoins) verið að ryðja sér til rúms í rafmyntaheiminum. Fastgengismyntir eru í einföldu máli staðgenglar hefðbundinna gjaldmiðla í rafmyntaheiminum. Stærstu fastgengismyntirnar eru USD Tether (USDT) og USD Coin (USDC). Í daglegu tali eru þeir nefndir raf-dollarar. Sá sem á dollara getur skipt yfir í þessa raf-dollara á genginu 1:1 og fært þannig fjármuni sína inn í rafmyntaheiminn. Sá sem á raf-dollara getur með sama skapi skipt tilbaka í dollara á genginu 1:1. Margir aðrir gjaldmiðlar hafa einnig verið færðir yfir í rafmyntaheiminnm, s.s. raf-evra (EUROC, EURT), raf-pund (GBPT) raf-franki (DCHF), raf-yen (GYEN), raf-yuan (TCNH), raf-rúpíur (IDRT), og svo mætti áfram telja. Viðskipti með raf-dollara hafa vaxið gríðarlega á síðustu misserum og er umfang viðskipta nú meira en VISA og Mastercard.

Rafmyntasjóður Íslands hefur nú gefið út íslenskar raf-krónur (ISKT) en það er rafmynt sem fest er við gengi íslensku krónunnar 1:1. Íslenska fastgengismyntin ISKT hefur virkni stafræns gjaldmiðils. Fyrir hvert ISKT í umferð geymir Rafmyntasjóður Íslands 1 krónu í eignasafni. Með þessu móti er tryggt að alltaf sé hægt að skipta tilbaka í krónur. ISKT veitir fyrirtækjum og einstaklingum áreiðanlega og skilvirka lausn til að vinna með stafræna gjaldmiðla.

Hverjir eru notkunarmöguleikar ISKT?

  • Erlend viðskipti: Fyrirtæki sem framkvæma uppgjör erlendra viðskipta yfir í rafmyntaheiminn geta náð fram verulegum ávinningi með notkun ISKT:

    • Gjaldeyrisviðskipti: Rafmyntamarkaðir veita notendum möguleika á að leggja fram eigin tilboð í tilboðsbók. Verðmyndun á rafmyntamörkuðum leiðir af sér minni mun á milli kaup- og sölugengis samanborið við gjaldeyriskaup í gegnum íslenska banka.

    • Viðskipti ekki bundið við opnunartíma: Rafmyntamarkaðir eru opnir allan sólahringinn allan ársins hring. Notendur eru því ekki bundnir við tiltekinn opnunartíma og geta því stundað viðskipti sín hvenær sem er án hindrana.

    • Viðskipti ekki bundið við landamæri: Eðli rafmyntaviðskipta leiðir af sér að ekki skiptir máli í hvaða landi móttakandinn er staðsettur. Þó að móttkakandinn sé staðsettur hinum megin á hnettinum tekur sendingin jafn langan tíma. Hraði rafmyntasendinga er mismunandi milli bálkakeðja. ISKT rafkrónan er á Solana bálkakeðjunni sem er ein hraðvirkasta bálkakeðja heims þar sem sendingartími er að jafnaði 1-2 sekúndur.

Dæmi:

Íslenskir bankar bjóða að kaupa USD fyrir 144 kr. en selja USD fyrir 145 kr.

Íslenskt útflutningsfyrirtæki móttekur greiðslur frá félagi í Taivan í formi USDC. Greiðslan frá Taívan tekur 2 sekúndur að berast í veski íslenska félagsins. Íslenska félagið býður USDC til sölu fyrir ISKT á genginu 144,5 á rafmyntamörkuðum. Sölutilboðið er tekið af Íslenskt innflutningsfyrirtæki sem notar USDC til að greiða erlendum birgja. Greiðslan tekur 2 sekúndur að berast sem þýðir að erlendi birginn getur sent vörurnar af stað fyrr en ella. Bæði félögin hafa sparað sér bæði tíma og peninga sé þetta borið saman við þjónustu bankanna. Félögin áttu viðskipti á miðgengi og þurftu því hvorugt að greiða álag banka tengt gjaldeyrisviðskiptum. Tíminn sem sparast er oft á tímum enn verðmætari enda taka erlendar millifærslur almennt a.m.k. 1-2 daga í gegnum SWIFT / SEPA kerfi bankanna.

  • Fjárfestingar í rafmyntum: Með ISKT er auðvelt og hraðvirkt að breyta krónum sínum í rafrænt form í þeim tilgangi að fjárfesta í rafmyntum. ISKT er gefið út á Solana bálkakeðjunni og geta handhafar ISKT skipt í allar rafmyntir sem gefnar eru út á keðjunni. Þannig geta notendur fjárfest í wrappaðar útgáfur af Bitcoin, Ethereum og BNB svo eitthvað sé nefnt. Einnig er hægt að skipta ISKT yfir í USDC á Solana sem er gjaldgengt á öllum stærri rafmyntakauphöllum heims svo sem Binance, Kraken, Coinbase o.fl. en þetta leyfir notendum þannig að nýta sér fjölbreyttari og ódýrari fjárfestingarmöguleika samanborið við íslenska rafmyntamarkaði.

  • Ávöxtun ISKT: Með því að taka þátt í lausafjárpotta eins og Orca.so geta ISKT-eigendur fengið þóknun af færslugjöldum sem aðrir notendur greiða við skipti milli rafmynta. Fjárfestar (e. liquidity providers) geta lagt rafmyntir inn í sjóðinn og fá hluta af þeim þóknunum sem notendur borga inn í sjóðinn. Þegar fjárfestar leggja inn í sjóðinn verða þeir að leggja inn báðar rafmyntir í jöfnum hlutföllum. Hægt er að kynna sér betur lausafjárpotta hér.

Öryggi og gegnsæi

Öryggi og trygging eru grundvallaratriði þegar um er að ræða notkun stafrænna gjaldmiðla. Á vefsvæði Mintum.is, þar sem notendur skipta krónum yfir í ISKT rafkrónur, er notaast við rafræn skilríki Auðkennis fyrir innskráningu auk þess sem hægt er að bæta við fjórar mismunandi fjölþátta auðkennisleiðir, allt frá SMS-skilaboðum til öryggislykla.

Rafmyntasjóður Íslands er skráður þjónustuveitandi sýndarfjár og lútir eftirliti Seðlabanka Íslands samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Löggiltir endurskoðendur ganga úr skugga um að innistæða bankareikninga svari undir öllum rafkrónum á markaði hverju sinni en staðfestingar þess efnis eru birtar reglulega á vefsvæði félagsins.